Dómaranáksmeið á fimmtudag kl 19
Í dag kl 19 (ath breytt tímasetning) verður haldið dómaranámskeið fyrir dómara á mýrarboltanum. Námskeiðið er opið öllum sem eru áhugasamir um að vera dómarar.
Á námskeiðinu verður farið yfir reglur og helstu áherslur í dómgæslu. Þeir sem mæta og komast í gegnum námskeiðið frá B réttindi dómara frá Mýrarboltafélagi Íslands. Þeir sem mættu á námskeiðið í fyrra gefst kostur á að mæta aftur á námskeiðið í og hljóta í lok þess hin eftirsóttu A réttindi dómara frá Mýrarboltafélagi Íslands, sem gefur alþjóðleg dómararéttindi í mýrarbolta og eru þar með gjaldgengir til að dæma alþjóðlega mýrarboltaleiki (landsleiki).
Námskeiðið er í Íþróttahúsinu á Torfnesi á Fimmtudaginn kl.19
Síðast uppfært: Fimmtudagur, 30. júlí 2009 11:27





