Takk fyrir helgina!
Evrópumótinu í mýrarbolta 2009 er nú lokið. Mótið fór vel fram. Væta og kuldi setti strik í reikninginn fyrri keppnisdag, en seinni daginn var sólskin og hlýtt í veðri. Vellirnir fjórir voru í þyngra lagi og átti fólk oft í erfiðleikum með að losa sig úr drullunni.
Seinni daginn var keppt í drulluteygjunni, tónlist var leikin á sviði og börn og unglingar fengu að spreyta sig.
Wakiki Nullrocks sigraði karladeildina og Ofurkonur kvennadeildina. Voru liðin vel að sigrinum komin. Úrslit verða sett inn á síðuna þegar menn hafa sofið úr sér þreytuna, sem og myndir af herlegheitunum. Allar myndir og sérstaklega myndskeið sem leikmenn og áhorfendur kunna að hafa tekið eru vel þegin.
Aðstandendur Mýrarboltans þakka öllum þeim fjölmörgu sem lögðu hönd á plóg við að gera mótið svona glæsilegt. Þátttakendum, sem margir voru langt að komnir, er þá þakkað fyrir gott og drengilegt mót.
Sjáumst að ári!




