Hvernig kemst ég til Ísafjarðar?
1.Taktu flugið!
Fljótlegasta og auðveldasta leiðin er að fljúga. Flugfélag Íslands flýgur tvisvar á dag til Ísafjarðar og oftar þegar þurfa þykir. Hægt er að bóka far á heimasíðu félagsins.
2. Keyrðu!
Það er líka hægt að keyra til Ísafjarðar og er um þrjár leiðir að velja. Vinsælustu leiðirnar eru annarsvegar um Dali, Þröskulda og Ísafjarðardjúp (455 km) og hinsvegar um Dali og Dynjandisheiði (455 km). Fyrri leiðin er á malbiki alla leið en sú seinni er 23 km á möl. Gera má ráð fyrir að það taki um 5 tíma að keyra frá Reykjavík til Ísafjarðar.
View Larger Map
View Larger Map
3. Fáðu far!
Deildu bíl! Á vefnum Samferða.net er auðvelt að komast í samband við fólk sem er á sömu leið og þú. Þannig er bílferðin bæði skemmtilegri og fleiri um bensínútgjöldin.
Síðast uppfært: Þriðjudagur, 14. júní 2011 19:03