Mýrarboltinn

Verslunarmannahelgin 2011


Spurt og svarað

Ég er ekki í liði. Get ég verið með?Drulla

Einfalt: mættu á skráningarkvöldið og segðu aðstandendum frá því að þig vanti lið. Það eru alltaf bæði skraplið og lið sem vantar liðsfélaga, bæði karla- og kvennamegin, svo þetta er ekkert vandamál. Ef þetta er staðan er óþarfi að skrá sig.

Hvað er drulluteygjan?

Teygja er fest í bíl eða eitthvað mjög þungt. Teygjan er svo tengd í klifurbelti og keppt í því að hlaupa eins langt frá bílnum og hægt er og setja þar niður fána. Sá sem kemst með fánann lengst vinnur.

Er skylda að vera í búningum?

Já og nei. Verðlaun eru veitt því liði sem er í flottustu búningunum og eru mörg lið, sérstaklega kvennamegin, sem leggja mikið upp úr búningagerð. Það er ekki skylda að vera í íburðarmiklum búningum, en það er samt skylda að vera í einkennandi fötum eins og samlitum stuttermabolum eða með samstæða hatta eða eitthvað þvíumlíkt.

Hvaða titlar eru í boði?

Bað

Það er breytilegt milli ára í hvaða flokkum aukaverðlaun eru veitt. Jafnan eru veitt verðlaunin Skítugasti leikmaðurinn. Stundum hefur skemmtilegasta liðið verið valið af sérstakri dómnefnd. Ef einhver sérstök tilþrif eru sýnd, eru oft veitt verðlaun fyrir það. Þannig fékk Dóri Skarp einu sinni verðlaun fyrir að fara út af vellinum (hann hélt það væri kominn hálfleikur). Liðið hans tapaði leiknum vegna marksins sem liðið fékk á sig fyrir vikið.

 

Dómnefnd og drullusokkur geta í stuttu máli sagt veitt eftir geðþótta hver þau verðlaun sem þeim sýnist heppilegt í hvert sinn.

Hver er leiktíminn og hvað eru margir inná í einu?

6 manns eru inná í einu. Flest lið hafa 10-12 leikmenn innanborðs, enda leyfilegt að skipta inná eins oft og vilji er til. Sjá síðu um reglurnar í Mýrarbolta.

Hvar er Tungudalur?

Í Tungudal í Skutulsfirði er tjaldsvæði og golfvöllur Ísfirðinga. Þar eru þrír sérgerðir mýrarboltavellir og á til að baða sig uppúr að keppni lokinni.

Hnit: 66°3'34.21"N, 23°12'23.17"W (ISN93: 309.577, 624.469)

Smelltu hér til að sjá Mýrarboltamótið á Ísafirði í Google-korti.

Hvernig er best að vera búinn?

Hver og einn hefur sinn stíl í útbúnaði, en hægt er að hafa þetta í huga.

Skór: Þó sumir segi skó ekki skemmast í mýrarboltanum, er ljóst að þeir verða aldrei samir ef þeir fara í drulluna. Best er að nota gamla strigaskó. Mikilvægt er að taka með sér teip því sogið er svo mikið í drullunni að teipa þarf skóna við ökklann. Óþarfi er að vera í takkaskóm (og jafnvel verra) og legghlífar og slíkt er óþarfa pjátur. Sumir eru berfættir og líkar vel. Öðrum finnst best að vera í thermos-sokkum eða ullarsokkum, því maður er blautur í fæturna allan tímann sem maður er að keppa og milli leikja og það getur orðið kalt ef maður er í bómull.

Búningar: Sjá að ofan. Fólk er jöfnum höndum í stutterma og langerma bolum, og í stuttbuxum og síðbuxum.

Annar búnaður: Gott er að vera með nóg af ruslapokum til að klæða sig í eða setja undir sig í bílnum sem maður fær far með niðrí bæ, því þó maður fari í ána og skoli af sér er alltaf eitthvað eftir sem klínist í bílinn.

Hvað er málið með matinn?

Lengi vel var matur á lokahófinu. Árið 2011 verður ekki matur, heldur hefst lokahófið uppúr kvöldmat. Á lokahófinu er myndasýning, verðlaunaafhending. Þá eru kærur lesnar upp og þeim þvínæst hent í ruslið.

Áfengi?

Áfengi er leyft á hátíðinni (keppnin er ekki fjölskylduhátíð), en mótstjórn áskilur sér rétt til að senda fólk heim sem er sér ekki til sóma. Sá réttur hefur óspart verið nýttur í gegnum tíðina.